Siðgæði og sérhagsmunir. Samskipti Íslands og Litháens, 1918–1988

Frá ráðstefnu við Háskólann í Vilníus, 5. júní 2026

Aðalerindi á ráðstefnu við Háskólann í Vilníus, 5. júní 2026. Hún var haldin í minningu Jörundar Hilmarssonar málvísindamanns sem lést fyrir aldur fram árið 1992 en hefði orðið áttræður í ár.

Ráðstefnan nefndist Hidden Bridges, Rediscovered Paths: Iceland–Lithuania Through Time. Erindið var á ensku og nefndist Morality and Expediency. Icelandic–Lithuanian Relations, 1918–1988. Í því var einkum farið yfir afstöðu íslenskra stjórnvalda til innlimunar Litháens og hinna Eystrasaltslandanna í Sovétríkin í seinni heimsstyrjöld. Rakið var að þótt sú nauðung hefði aldrei verið viðurkennd formlega gengu íslensk stjórnvöld mjög langt í að viðurkenna hana í verki. Þar réðu viðskiptahagsmunir mestu og sú afstaða að smáríki gætu hvort eð er engu breytt í hörðum heimi.

Stefnt er að útgáfu fyrirlestrarins en handritið má lesa hér.

Frá ráðstefnu við Háskólann í Vilníus, 5. júní 2026
Guðni Th stendur í pontu og fer með aðalerindi á ráðstefnunni.