Othello-slagurinn á Akureyri

Erindið „Othello-slagurinn á Akureyri og aðrar þorskastríðssögur sem læra má af ef vilji er fyrir hendi.“ Árla morguns hinn 14. maí 1973 lagðist breska eftirlitsskipið Othello að bryggju á Akureyri. Sumarið áður hafði fiskveiðilögsaga Íslands verið færð út í 50 sjómílur en Bretar neituðu að viðurkenna nýju línuna og hafði því komið til átaka á miðunum. Hiti var í Íslendingum og það sýndi sig þennan dag í höfuðstað Norðurlands. Í erindinu var rás viðburða rakin og einnig rætt hvaða lærdóm megi draga af „Othello-slagnum“ og öðrum þáttum í þorskastríðssögu okkar Íslendinga.
Erindið var hluti af fyrirlestraröð Akureyrarakademíunnar, Sagnfræðingafélags Íslands og Minjasafnsins á Akureyri. Stefnt er að því að grein um efnið verði birt síðar í ár í Súlum, ársriti Sögufélags Eyfirðinga.
 
Myndir af fésbókarsíðu Minjasafns Akureyrar