Erindi á málþinginu „Hver á Grænland? Nýlendustefna, ný-nýlendustefna og sjálfsákvörðunarréttur þjóða árið 2026“ við Háskólann á Akureyri, 4. febrúar 2026.
Erindi mitt nefndist „Af hverju ættu Grænlendingar ekki að geta staðið á eigin fótum?“ Í því var stiklað á stóru um nýlendusögu Grænlands, og meðal annars farið yfir þá vantrú og fordóma sem ríktu gjarnan í garð Grænlendinga hér á landi og í Danmörku. Einnig var vikið að ófrjósemisstefnu danskra stjórnvalda og öðrum misgjörðum sem þau bera ábyrgð á og þurfa að horfast í augu við. Loks var vikið að þeim leiðum sem eru Íslendingum færar til að styðja Grænlendinga á leið þeirra til farsældar – og frekara sjálfstæðis ef þeir kjósa svo.