14.-22. mars 2026
Mér hlotnaðist sá heiður að vera útnefndur Messenger-fyrirlesari við Cornell-háskóla í Bandaríkunum fyrir árið 2026. Messenger-fyrirlestrarnir eru æðsta viðurkenning fyrir fræðastarf sem háskólinn veitir. Samband Íslands við Cornell hefur lengi verið traust, ekki síst vegna Fiske-safnsins, stærsta safni íslenskra rita í Norður-Ameríku.
Ég flutti þrjá fyrirlestra: um Grænland sem síðustu nýlendu Evrópu, stöðu þess og framtíð; um áskoranir þess að vera sagnfræðingur sem gerðist þjóðhöfðingi með; og um þau áform að segja sögu Íslendinga í vandaðri og viðamikilli sjónvarpsþáttaröð.
Nánari upplýsingar má finna hér: