Fyrirlestur á Selárdalshátíð. Rætt var um dvöl Jóns forseta í veri vorið 1824 og hvernig og hvers vegna sagan af þeim starfa hefur verið sögð í tímans rás. Velt var vöngum yfir því hvort það hafi í raun verið sanngjarnt og réttlátt að prestssonurinn og viðvaningurinn Jón, sem átti að vera hálfdrættingur samkvæmt venju, krafðist heils hlutar og hafði sitt fram. Fyrirlesturinn verður gefinn út á prenti á næstu misserum.
Á Selárdalshátíð var opnað nýtt safn um líf og störf einsetumannsins Gísla Gíslasonar á Uppsölum. Mynd úr því fylgir og einnig myndir af verbúðum í Verdölum.