Grænland, Ísland og umbylting á norðurslóðum

Gudni Johannesson together with Kristina Spohr and Jeffrey Chwieroth

Fyrirlestur við London School of Economics & Political Science. 

Farið var yfir sögu Íslands undir dönskum yfirráðum og rakið hvernig Grænlendingar geta haft hliðsjón af henni á leið sinni til aukinnar sjálfsstjórnar og fulls sjálfstæðis óskir þeir þess í fyllingu tímans. Einnig var vikið að nauðsyn þess að ræða af hreinskilni sögu danskrar stjórnar á Grænlandi og horft til yfirlýsinga Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um Grænland síðustu vikur og mánuði.
 

Myndir: London School of Economics & Political Science.

Fyrirlesturinn á Youtube

„Ísland og Grænland eiga augljósa samleið,“ sagði GuðniTh Jóhannesson prófessor í sagnfræði og fyrrverandi forseti Íslands þegar hann flutti framsögu á opnum fundi í The London School of Economics and Political Science – LSE – í gærkvöldi 6. maí. Í erindinu fjallaði hann m.a.. um hvernig Grænlendingar geti dregið lærdóm af sögu Íslands, varnar- og öryggismál, norðurslóðir og yfirlýsingar Donald Trump Bandaríkjaforseta um að hann vilji innlima Grænland í Bandaríkin.

„Þessi einbeitti vilji Trump hefur áhrif á allar sviðsmyndir í framtíðinni,“ sagði Guðni en taldi þó að yfirlýsingar Bandaríkjaforseta væru „fáránlegar.“ Það tíðkaðist ekki lengur að kaupa og selja ríki. Þá væri hægt að tryggja varnar- og öryggishagsmuni Bandaríkjanna á Grænlandi í gegnum núgildandi samninga.

Guðni sagði líka að þrátt fyrir allt gætu Grænlendingar á endanum haft ávinning af þeim þungu öldum sem væru nú að skella á ströndum landsins, eins og forsetinn fyrrverandi komst að orði í lauslegri þýðingu Naflans.

Guðni sagði líka að Ísland hefði hagsmuni af því að sjá allt Vestnorræna svæðið blómstra en innan þess eru Grænland, Færeyjar og Ísland.

Í samtali eftir framsöguna við prófessor Kristinu Spohr, var Guðni m.a. spurður um alþjóðamál, Kína, Trump Bandaríkjaforseta og margt fleira. Hann svaraði sömuleiðis spurningum fundargesta sem voru fjölmargir.

(Texti: Sveinn Helgason, Nafli alheimsins:umfjöllun um íslensk utanríkismál